Nyskopun  

nyskopun.net

 

 

Sumar 2023:

Tækni-LEGO-námskeið fyrir 7–13 ára

 

 

mbl_lego

Myndskeið sem birtist á mbl.is þann 12. ágúst 2013

 

Uppbygging námskeiða:

  • Námskeiðin eru öllum opin óháð búsetu eða skóla.
  • Á staðnum eru um 100 kíló af tækni-LEGO-kubbum sem hægt er að byggja úr.
  • Krakkarnir læra að nota t.d. tannhjól, gírun, mótora, lofttjakka og fleira og fá aðstoð við að skapa sín eigin módel.
  • Stærð hópa er miðuð við 12 börn.
  • Ekki er ætlast til þess að börnin taki neina LEGO-kubba með sér heim.
  • Öllum er velkomið að taka með sér nesti og ef vel viðrar verður skroppið út til að fá sér ferskt loft eftir nestistímann. Hreyfiþörfin segir yfirleitt til sín og af öryggisástæðum leyfi ég börnunum ekki að hlaupa um inni þar sem þar er margt sem hægt er að hlaupa á eða detta á og því vil ég frekar að þau fari út til að hreyfa sig. Ég met þó aðstæður hverju sinni og leyfi börnunum ekki að fara út fyrir skólalóðina.
  • Rétt er að taka fram að börnin eru ekki sérstaklega slysatryggð á skólalóðinni eða í skólanum þar sem námskeiðið fer fram utan hefðbundins skólatíma. Ekkert stórkostlegt ætti að geta komið fyrir og við pössum upp á að umhverfið sé öruggt. Ef foreldrar óska þess að börn fari ekki út vinsamlegast látið vita og eins ef það er eitthvað sem við þurfum að vita um viðkomandi. Hægt er að taka það fram í liðnum "Annað" í skráningarforminu hér að neðan.

Leiðbeinandi:

  • Jóhann Breiðfjörð.
  • Starfaði í 5 ár sem hönnuður, hugmyndasmiður og ráðgjafi hjá tæknideild danska leikfangafyrirtækisins LEGO (LEGO Technik).
  • Hefur haldið Tækni-LEGO námskeið innan skóla og í félagsmiðstöðvum í meira en 20 ár.

Tími og staður:

  • Hópastærð er miðuð við 12 en tekið er við skráningum á biðlista þar sem reynslan hefur sýnt að upp geta komið veikindi eða önnur forföll með stuttum fyrirvara.
  • Staðsetningar og tímasetningar:
Staðsetning: Tímabil: Fjöldi skráninga núna:
    Hámark í hvern hóp: 12
Laugarnesskóli 19. júní - 23. júní kl. 09-12 17
0
Engjaskóli 26. júní - 30. júní kl. 09-12 10
26. júní - 30. júní kl. 13-16 6
Mýrarhúsaskóli 10. júlí - 14. júlí kl. 09-12 0
   
Hvaleyrarskóli 17. júlí - 21. júlí kl. 09-12 6
   
Vogaskóli 08. ágúst - 11. ágúst kl. 09-12 10
08. ágúst - 11. ágúst kl. 13-16 0
Háteigsskóli 14. ágúst - 18. ágúst kl. 09-12 9
14. ágúst - 18. ágúst kl. 13-16 6

 

 

Skráning á námskeið:

  • Vinsamlegast fyllið út eftirfarandi skráningarform:

 

Tímabil: Vinsamlegast veljið hóp.
Systkinaafsláttur: Vinsamlegast veljið annað hvort.
Nafn barns: Verður að fylla út.
Aldur: Verður að fylla út.
Nafn greiðanda: Verður að fylla út.
Kt. greiðanda: Verður að fylla út.Einungis tölur. Ekki bandstrik eða bil.Fjöldi talna þarf að vera 10.Fjöldi talna þarf að vera 10.Fjöldi talna þarf að vera 10.Fjöldi talna þarf að vera 10.
Heimasími: Einungis tölur. Ekki bandstrik eða bil.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.
GSM1: Verður að fylla út.Einungis tölur. Ekki bandstrik eða bil.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.
GSM2: Einungis tölur. Ekki bandstrik eða bil.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Verður að fylla út.
GSM3: Einungis tölur. Ekki bandstrik eða bil.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.Fjöldi talna þarf að vera 7.
Netfang: Verður að fylla út.Þarf að vera gilt netfang.

Annað:

   
 

 

Verð:

  • 12.900.
  • Veittur er 10% systkinaafsláttur af heildarverði.
  • Verðið fyrir vikuna 8.-11. ágúst er 10.320 þar sem um 4 daga er að ræða en ekki 5.
  • Foreldrar eru hvattir til að skrá börn sín tímanlega þar sem takmarkaður fjöldi kemst á hvert námskeið og undanfarin ár hafa færri komist að en vildu. Þegar hópur er orðinn fullur fer skráningin , sem send er inn, sjálfkrafa á biðlista og svo verður haft samband ef pláss losnar. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt að upp geta komið veikindi eða önnur forföll með stuttum fyrirvara.

Greiðslufyrirkomulag:

  • Krafa verður stofnuð í heimabanka þess greiðanda sem skráður er hér að ofan.
  • Staðfesta þarf skráningu með greiðslu.
  • Því miður er ekki hægt að greiða með korti.

Upplýsingar:

 

 

 

 

©2023 www.nyskopun.net | 6978692 | johann@nyskopun.net