TÆKNI-LEGO NÁMSKEIÐ FYRIR 6-13 ÁRA:

(Hérna má sjá Vélmenni frá mbl.is sem sýnir hvað börnunum finnst um námskeiðin)
Uppbygging námskeiða í grunnskólum:
- Á staðnum eru um 100 kíló af tækni-LEGO-kubbum sem hægt er að byggja úr.
- Krakkarnir læra að nota t.d. tannhjól, gírun, mótora og fleira og fá aðstoð við að skapa sín eigin módel.
- Um er að ræða frístundanámskeið sem hafa hafist að skóladegi loknum og gengið er út frá því að foreldrar greiði fyrir þátttöku barnanna.
- Ég sé um allt utanumhald og námskeiðin eru ekki neitt aukaálag á stafsfólk skólanna.
- Það eina sem þarf til af hálfu skólanna er grænt ljós á námskeiðin, kennslustofa og að miðla upplýsingum til forráðamanna á einhvern máta. Til dæmis með tölvupósti, upplýsingum á heimasíðu viðkomandi skóla eða með öðru móti. Starfsfólk frístundaheimilanna hefur einnig stundum látið forráðamenn vita.
- Ég bý svo til skráningarsíðu fyrir viðkomandi skóla eins og sjá má á forsíðunni.
- Ég er einnig með staðlaðan tölvupóst þannig að skólarnir þurfa ekki að semja tilkynningarnar sem sendar eru til forráðamannanna.
- Tímasetningar eru ákveðnar í samráði við viðkomandi skóla og frístundaheimili.
- Ég hef svo alltaf gefið þeim börnum afslátt sem skráð eru í vistun á frístundaheimlum á sama tíma og námskeiðin standa yfir. Afslátturinn nemur u.þ.b. vistunargjaldinu þann tíma sem námskein standa samtals yfir í og því er ekki verið að greiða tvöfalt fyrir sama tíma.
- Miðað er við að hvert námskeið sé 3 skipti sem hvert fyrir sig er 80 mínútur.
- Miðað er við að þátttakendur á hverju námskeiði séu ekki fleiri en 15.
- Yfirleitt eru tveir hópar sama dag. Sá fyrri er fyrir 1.-2. bekk og sá seinni fyrir 3.-7. bekk.
- Hópurinn fyrir 1.-2. bekk hefur hafist um 10 mínútum eftir að þessir árgangar eru búnir í skólanum og hópurinn fyrir 3.-7. bekk strax og yngri hópurinn er búinn.
- Verð fyrir 3 * 80 mínútur er: 4.500.
Námskeið á skólatíma og annað fyrirkomulag:
- Einnig er möguleiki að breyta námskeiðsfyrirkomulaginu eins og hentar á hverjum stað fyrir sig. Þetta á við um lengd hvers tíma og fjölda skipta. Ég hef einnig haldið námskeið á skólatíma og hver hópur hefur þá verið í tvo samliggjandi tíma (80 mínútur). Hægt er að vera með einn bekk í einu og þá hafa tveir og tveir nemendur hjálpast að. Þau námskeið hafa verið greidd af viðkomandi skólum og hef ég rukkað 16.500 fyrir hvern hóp.
Leiðbeinandi:

- Nafn: Jóhann Breiðfjörð.
- Starfaði í 5 ár sem hönnuður, hugmyndasmiður og ráðgjafi hjá tæknideild danska leikfangafyrirtækisins LEGO (LEGO Technik).
- Hefur um árabil haldið Tækni-LEGO-námskeið í grunnskólum og félagsmiðstöðvum á Íslandi.
- Hefur haldið yfir 400 nýsköpunarkynningar fyrir grunnskólabörn og á 3 börn sjálfur.
Bókanir og upplýsingar: